Leiguíbúðir var stofnað
í mars 2002 og sérhæfir sig í að
byggja og leigja út
íbúðir í miðborg Reykjavíkur.
Framboð á góðu húsnæði
á svæðinu hefur verið mjög takmarkað
á undanförnum árum og íbúar
miðborgarinnar oft á tíðum
þurft að glíma við mikið viðhald
á gömlum húsum sem þægilegt væri
að færa
yfir á aðra aðila.
Æ fleiri gera sér grein fyrir því
hversu hagkvæmt er að búa í leiguhúsnæði
sem afhendist fullbúið. Enda er mun algengara í
borgum erlendis að fólk
leigi heldur en að það eigi húsnæðið
sem það býr í. Við það
sparast viðhald
og annar kostnaður við eignaumsýslu, áhyggjur
og vinna. Íbúarnir fá nýtt
húsnæði á þeim stað sem þeir
vilja búa á en geta samt flutt sig þaðan
seinna
án þess að þurfa að ganga í
gegnum kaup og sölu húsnæðis.
Einnig eru mörg fyrirtæki sem hafa
áttað sig á hagkvæmninni við
langtímaleigu á húsnæði fyrir
starfsmenn sína. Erlent vinnuafl er nú mun
algengara en áður og þá sérstaklega
í tæknigeiranum. Sendiráð hafa líka
nýtt
sér þessa þjónustu talsvert. Í
leiguíbúð þarf ekki að hugsa um
viðhald, kaup
og sölu. Það sparar rekendum fyrirtækja
áhyggjur og vinnu.
Leiguíbúðir eru nú með
í leigu, 14 2ja,3ja og 4ja herbergja íbúðir
að Njálsgötu ásamt 21 2ja,og 3ja herbergja
íbúða í nýstandsettu lyftuhúsi
að Brautarholti.